17.6.2007 | 11:08
Brúðkaup 16 júní 2007.
Þarna á miðri mynd má sjá einhvern rosalegasta brúðkaupskoss allra tíma fyrir framan altari drottins, Hallelúja.
þetta eru Arna og Guðni og þau eru gift. Athöfnin í Dómkirkjunni var óaðfinnanleg með gleðitárum, sælubrosum og hæfum presti.
Veislan í kjölfarið var í anda hjónanna, fullt af mat og góðum vínum. Og súkkulaði, sem var ráðandi í einni bestu köku sem ég hef étið. Að sjálfsögðu endaði veislan með ekta gítarpartýi þar sem brúðguminn fór hamförum með hljóðnemann og söng sem aldrei fyrr.
Til hamingju Arna, Guðni og fjölskylda með frábæran dag. Megi gæfa og gengi fylgja ykkur um ókomna tíð.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:09 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.